sunnudagur, 12. október 2008

Korter

átti pantaðan tíma í umbúðarskipti í gærmorgun klukkan hálf ellefu
ég gekk út klukkan tólf, alblóðug og útgrátin

jább ég ER ótrúlega töff

það kom sem sagt læknir og kíkti á mig og úrskurðaði ofholdgunina í tánni það mikla að það væri ekkert hægt að gera nema "skera burt allt hold, skrapa upp naglbeðinn og brenna svo fyrir"

eins ótrúlega spennandi og það hljómar þá spurði ég hvort hann væri að grínast
hann sagði nei
hló samt smá og sagðist deyfa mig vel svo ég ætti ekki að finna fyrir neinu

ég lagðist á gamla góða bekkinn og harkaði af mér í gegnum deyfinguna
sami skammtur og sami staður og síðast svo þetta var svo sem ekkert nýtt

hann fer og ég "hinkra" í korter, sem var álíka skemmtilegt og að bíða eftir strætó
þegar hann kemur aftur prófar hann að snerta á mér tána
beint í sárið til að athuga hvort deyfingin væri orðin fín fyrir aðgerðina
hann potaði bara svona létt og ég fann algjörlega fyrir því, deyfingin var ekkert farin að virka
þá setti hann helmingi meira af deyfingu og sagðist vera búinn að stútfylla á mér tána

aftur var ég látin "hinkra" í korter

hann kemur aftur, fullviss um að táin sé orðin algjörlega tilfinningalaus, sleppir því að pota og tekur strax upp hnífinn og sker í
ég öskra
tár á hvarma
deyfingin virkar ekki baun segi ég og finn fyrir öllu

hann segir að þetta sé rosalega skrýtið, tekur deyfisprautuna og stingur á bólakaf í sárið
ég kippist til af sársauka og hann segir mér að "hinkra"

blóðið vætlar úr sárinu og ég engist um í þetta frábæra korter

hann kemur inn í þriðja sinn, potar í sárið og ég finn fyrir öllu
hann segist ekki skilja þetta, hann geti ekki sett meiri deyfingu því það megi ekki, segir eina ráðið að bíta á jaxlinn og harka af mér

HARKA AF MÉR????

og svo hófst helvíti

hann sem sagt var með hníf á kafi í tánni á mér og ég fann fyrir öllu saman
hann skar og djöflaðist, tók svo risastórt járnáhald sem hann notar til að "skafa upp naglbeðinn" með og tróð því ofan í herlegheitin
blóð um allt og tár á hvarma
þegar ég hélt að þetta gæti ekki versnað og að lífi mínu væri lokið tók hann hnífinn og járndraslið út úr tánni og tróð risabómull með spritti ofan í

mmm kósý

hann brosti og sagði að nú væri þetta að vera búið
ég spurði hvort hann væri búinn að skera allt holdið burt og hann sagði já
samt prófaði hann svona aðeins að pota í sárið með hnífnum til að vera alveg viss
hann hætti svo og sagðist vera búinn
ég andaði léttar en tárin héldu áfram að streyma
þá bað hann hjúkkuna um lapiserdótið, hjúkkan náði í plastpoka og í honum voru svona eins og grillpinnar
grillpinnar, hugsaði ég og spurði hann hvað þetta væri
hann sagði að þetta væri notað til að brenna fyrir sárið
og síðan stakk hann grillpinnanum á bólakaf í tánna á mér svona hundrað sinnum því pinninn brennir svo lítinn part í einu

þá hélt ég í alvöru að ég myndi deyja
hann kláraði þetta sem tók svona eilífð og sagði svo að nú þyrfti sárið að fá að blæða
hann sagði mér að "hinkra" í korter
ég hélt hann væri að grínast en þá yfirgáfu hann og hjúkkan herbergið og ég lá ein eftir með Brján alblóðugan og við erum að tala um ásýnd sláturhúss þarna á tánni á mér
svona tveir lítrar af blóði takk fyrir

og jájá allt í lagi ég skal hinkra í korter lalala...

DAUÐI

síðan kom hann aftur, sprittaði þetta, pakkaði mér inn og sagði mér að koma aftur á mánudaginn í tékk

ég staulaðist út, með tár um allt og kökk í hálsinum
keyrði heim á tíu því ég gat ekki ýtt á bensíngjöfina almennilega af sársauka

kom heim, lagðist upp í sófa, hringdi og vældi í mömmu og lá þar það sem eftir leið dags
og ég bara lá
gat ekki einbeitt mér að neinu fyrir sársauka

og svo þarf ég að koma til þeirra núna annan hvern dag í allavega tvær vikur að fá sterakrem og láta skera meira ef þarf...dásamlegt

frumsýning næstu helgi þar sem ég þarf að hoppa og skoppa á himinháum skóm

en þið vitið, allir að brosa því það er kreppa og þá eiga allir að vera haaaaamingjusamir jeeei

4 ummæli:

jennzla sagði...

Shit og fuck og shit og holy fucking crappers crapperson!

Ég er hætt að kvarta yfir krónískum strengjum og marblettum!

Mér er bara illt í báðum stóru tánnum eftir þessa lesningu!

Vona að þetta bindi fastan enda á þessa táslumartröð þína!

Annars held ég bara að það sé best að klippa hana bara af!

SHIIIIIIIIIIIIIT!

Þú ert hetja!

Nafnlaus sagði...

ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ ég fynn til með þér, ég hef verið einu sinni saumaður án þess að vera deyfður og það var sárt, þetta er örugglega enn verra. Er ekki bara best að fá sér Visky, já eða Landa það er ódýrara.

Nafnlaus sagði...

Ég segi: AF MEÐ TÁNNA!!!

Þú hlýtur að sjá að þessi tá er djöfullinn, ekki láta gabba þig svona auðveldlega vinkona :(

Elva Dögg

Nafnlaus sagði...

Úff.. mér líður illa eftir að hafa lesið þetta!