er viðbjóður
Losaði mig undan viðbjóðnum fyrir tæplega tveimur vikum. Ekkert kjöt á diskinn minn takk. Samt mjólk. Get ekki lifað án hennar og hún ekki án mín. Samband okkar er afar sérstakt og vanmetið.
Í nótt át ég skinkuhorn. SKINKUhorn. Fattaði það ekki fyrr en líkið var farið að meltast í mallanum. Ástæðan fyrir kaupunum á SKINKUhorninu var sú að það var á tilboði. 99 krónur.
Þetta er úti um allt. Hvert sem við lítum eru viðbjóðslegar blóðsugur sem reyna að ota að okkur líkum annarra. Blanda þeim saman, hakka þau, genabreyta þeim, forelda þau. Rétt eins og okkur. Blöndunin hefst strax þegar við erum minni en þetta: . , næst tekur við ansi dugleg hökkun, þá hefst genabreyting og loks níu mánuðum seinna: foreldrumst við*.
Baunir og grös eru það sem koma skal. Svona eins og unga fólkið; framtíðin.
*að eignast foreldra
Kjöt kjöt kjöt kjöt kjöt
Ég hvet ykkur til að líta á aumingja litla pepperónílíkið á brauðinu ykkar og bjóða því góðan daginn næst þegar þið festið kaup á líkum annarra. Athugið hvort það heilsi til baka og biðjist jafnvel vægðar. Skoðiði það grandlega og sjáiði hvað þið eruð að láta ofan í ykkur alla daga, mörgum sinnum á dag. LÍK.
Hugsaðu þér, kannski var litla pepperóníbarnið á leiðinni í stærðfræðitíma þegar það var hrifsað burt frá öllu og öllum og hakkað niður svo að þú gætir keypt það á spottprís hjá kaupmanninum á horninu og skellt nýslátruðu barninu á brauðsneiðina.
Illgjörnu líkætur.
-------------------------------------------
A: Hvað er grænt, hangir uppi á vegg og blístrar?
B: Hmmm...
A: Giskaðu
B: Álfur?
A: Nei. Síld.
B: Síld? En hún er ekki græn
A: Ég litaði hana græna
B: En hún hangir ekki uppi á vegg
A: Ég hengdi hana upp á vegg
B: Síld blístrar ekki
A: Nei...því bætti ég við svo þetta yrði ekki alltof auðvelt
sunnudagur, 16. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Vo
sidan hvernaer vardst THU af ollum graenmetisaeta?
BATTL
jojo
jo
ad eta ekki kjot
thad er bara rugl
hvad er svona slaemt vid litinn daudann fugl?
Eg fila thad
Thu filar thad
allir fila thad
Litid svin a ponnu
kindaborn i konnu
og systir hennar onnu
Altt eru thetta
gomsaett aeti ja
yoyo
yo
Hvad er svona slaemt
vid getnadarleg lik
Betri er eitt naut i maga
en tvo i haga
FRIK
Djofull er madur kominn ur aefingu
Manstu hvad vid vorum ordnar godar?
-BG ganztah
og hey eg get ekki skodad videoid thitt. Maetti halda ad eg vaeri hinum megin a hnettinum eda eitthvad.
BG gangztah
Komdu nú gamla kú
elsku lamb I love you
Hakkað,
pakkað,
malað og mulið
ekkert af þessu er fyrir mér hulið
ég þoli ekki lík á pönnu
lík í poka, lík í könnu
lík á ekki heima hér
allavega ekki hjá mér
það er gott að vita hvað maður vill
veriði bara áfram ill
mér er sama, já sama er mér
kindakjöt fæst ekki hér
bjúgu, pylsur, svín og læri
þau fá ekki einu sinni tækifæri
til að lifa, til að dafna
sjáðu bara hvar þau hafna
í líkpoka á eldhúsborði
koma ekki upp einu orði
ykkur að kenna ljóta fólk
troðið þeim í pappírshólk
Éttu éttu éttu meira
má ég ekki fá að heyra
hvað þú ást og hvað þú sást
var það kannski lítil lambaást
nú er ég hætt að ræða málin
veldu hvort þú vilt borða álinn
en hugsaðu um það litla lamb
það var á leið á fjallakamb
hamingjusamt með gras í haga
nú það er LÍK Í ÞÍNUM MAGA
yo yo
fokk ju
yo
Hugsadu
hugsadu
hugsadu thig vel um
hvad heimurinn vaeri njettur
ef hann vaeri ekki svona thettur
af likum i jordu
Betra vaeri ad lata thau renna
gegnum meltingarkerfid sem myndi thau brenna
vel og vandlega
vandlega og vel
vertekki med neina hel
vitis vorkunarsemi
gagnvart vidbjodi ljotum
eins og litlum lombum
og disneybombum
Tha skulum eta
og laera ad meta
That er allt annad mal
en eitthvad HELVITIS KAL!
BG gangztah
Skrifa ummæli