Ég er veik.
Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki í heiminum þá eru það gullfiskar, ástandið, orðið ,,útland" og veikindi. Þegar ég er veik missi ég alla mögulega löngun til að gera nokkurn skapaðan hlut. Samt pirra ég mig yfir því allan daginn og alla dagana sem ég er veik, að ég hafi ekki afrekað neitt í veikindunum. Að liggja undir sæng og glápa á vídjó eða lesa er tímaeyðsla.
Fékk póstkort frá Hong Kong í dag. ,,Hæ elsku Guðrún Sóley!" ,,Elska þig"
Elskulegur ástmaður minn sem býr og starfar í Hong Kong hefur tekið sig á í íslenskunni og er farinn að tjá ást sína á mér á móðurmálinu.
Hmm nei.
Það er frá Báru sem býr núna í Nýja Sjálandi en var stödd í Hong Kong, nýkomin frá Kína og á leið til Taiwan. Úff...og hér sit ég alein á gólfinu í tómlegri íbúðinni á litla kalda Íslandi.
Furðulegt hvað líkamsstarfsemin fer í mikið rugl þegar ég er veik. Get ekki borðað neitt né drukkið en geri samt ekki annað en að fara á klósettið. Talaði við Báru áðan og þá kom þessi líka frábæra pikkuplína frá mér:
Ég get haldið í mér fyrir þig...
ekkert nema ást
miðvikudagur, 26. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hAEEEEEe
eg er komin heim
eda reyndar er eg bara alls ekkert komin heim eg kem heim eftir ar mohahahahahahaha
skemmtilegt ad sja ad enginn er buinn ad kommenta sidan eg for ut. Maetti halda ad eg vari su eina sem les thetta blessada blog (tho ad tha se nu med eindaemum gott)
BATTL
jojo
jo
eg er farin ut ad hlaupa
til ad worka vodva,
hjarta mitt og stodva
brennsluleysi mikid
sem undanfarna daga
hefdi matt laga
thvi aetla eg ad leggja undir mig
5,64 kilometra
thar naes mun eg worka sixpakkid
sem nanast
fallid er i gleymsku
vegna heimsku
sidan mun eg worka
handleggi og bak
thar til eg get klifid
veggi og thak
med vinstri litlaputta
SCOOOOOOOOOOOOOORE
-bG gAnGsTaH
jo
jo
jojo
nennirdu ekkad svara
tha skaltu bara fara
i rassgat
Hlaupa og hlaupa
til hvers að kaupa
þér tíma með því?
Það skil ég ekki
bundin í hlekki
æ og sí
Dvergur bauð mér í partý
artí fartí
að hanga með dverg
Ég hræddist hann mjög mikið
hann gæti mig svikið
ég potaði í dverginn Berg
Hangir í Hong Kong með þínum school
allir rosa hipp og kúl
ég á köldum klaka
ýsuna að flaka
í vaskinum laka
ég þarf að fara og taka
mér maka
í hvelli
ég þoli þetta ekki
þig ég þekki
en fæ ekki að sjá
ekkert að fá
bara að skrifast á
já
Skrifa ummæli