laugardagur, 31. maí 2008

Mannrán

..hljómar eins og náraanammi aftur á bak. Sem er viðbjóður...

Ég rændi manneskju í gær.
Henti henni inní bíl og neyddi hana til að hafa bæði augu og eyru lokuð fyrir öllu utanaðkomandi áreiti. Brunaði með hana bæjarfélagi, úr bæjarfélagi. Endastöðin: bílaplan menntaskóla. Mjög góður staður. Afskekktur staður í afskekktu sveitarfélagi.
Ég tók hana út úr bílnum, hélt um hendur hennar...

og leyddi hana að poppvélinni!!! ÓJÁ fyrsta mannránið mitt heppnaðist FULLKOMLEGA. Bílabíó er eitthvað sem við klakabúar erum ekki vanir, og því var þetta ótrúúleg upplifun sem hafði í för með sér mjög mikið "sing-a-long" (enda verið að sýna GREASE HALLÓ), popp og candyflos um allan bíl.

svo var þetta auðvitað ótrúlega rómantískt og fallegt allt saman.

---

sex dagar í sveitina og ég er að fara á taugum úr spenningi!!

2 ummæli:

jennzla sagði...

Vá góðan daginn!Ein duglega ð blogga....og ekki er það ég!

Skólinn skólinn skólinn skólinn!

Og æji leiðinlegt þetta með frakkland...flyttu bara með mér til london í staðinn ;o)

Nafnlaus sagði...

Hæ hó, ég vil skó!!!

TAKK svo meget fyrir að ræna mér í gær, þetta var sko heldur betur besta náranammi í heimi...

GREASE IS THE WORD, WHAT WHAT IN THE BUT...

Love you longtime Frk. Formaður Rúsínurass, þín Skelva Bögg :)