föstudagur, 26. september 2008

Skrif

ég er að skrifa handrit
handrit að kvikmynd
kvikmynd í fullri lengd

fyrir tveimur dögum síðan hefði það ekki hvarflað að mér

hvað þá fyrir tveimur mánuðum

en þetta gengur vel

---

fékk vél og dót lánað yfir helgina frá skólanum
Sú rauðhærða og Risinn mun því verða að veruleika um helgina
ætla að græja allt sem til þarf á morgun og svo eru tökur á sunnudag

jibbí

---

keypti passa á RIFF í dag
það er dásamlegt
og það góða er að ég get legið í bíó alla helgina þar sem ég hef fátt betra að gera
ætlaði að mæta núna hálf sex og vera til hálf tvö í nótt í myrkvuðum sal en ætla frekar að leggja mig og mæta sjö
á morgun ætla ég svo að byrja hálf fjögur að degi og stefni á að vera til hálf þrjú um nóttina...ekki amalegt að sitja í bíóhúsi í 11 tíma

rok og rigning, auraleysi, vonleysi, eymd og almennur septemberfílingur gerir mér kleift að kúra við skrif, bíó og tökur alla helgina

ef einhvern langar í bíó með mér þá má hann láta mig vita, ég get samt ekki borgað fyrir ykkur, en ég skal vera skemmtileg og leyfa ykkur að velja sæti

1 ummæli:

jennzla sagði...

Úff væri til í að hanga í bíói allan helgina! Er ALVEG búin á því!

En það er dýrt í bíó hérna í London um helgar og ég á engan pening.

Og kvikmyndahandrit í fullrit lengd! Það er ekkert minna! Asskoti magnað!

En hafðu það gott í kvikmyndastússi um helgina :o)

Knús og knús ofan!