Ég mun túlka tilfinningar mínar með dansi;
(stúlka gengur inn á svið með stúdentshúfu, klædd í kvenmannsdragt og ælir yfir sig alla og étur síðan húfuna)
ég hata aldur
ég hata stúdenta
ég hata kerfið
:(
svo hata ég líka töluna 4 og ég fékk páskaegg númer 4 sem er klárlega ekki nógu stórt og þar að auki er það númer 4 og því er ekki fræðilegur möguleiki á að ég taki það í sátt
mig dreymdi líka fyrir því sem gerir hlutina bara enn verri
mánudagur, 17. mars 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Líst vel á þennan gjörning þinn! Þú getur þó kennt þessum um þína útkomu, en hvað hef ég?!
Lamda er samt búin að lengja sinn umsóknarfrest fyrir íslendinga þar sem þeir eru að mæta á klakann að athuga hvort hér sé leikandi fólk...gæti verið intresting...
en þú tæklar þá bara F&F ;o)
Svo vona ég að vinir okkar sem komust áfram fari alla leið! Hef fulla trú á þeim og löngu komin tími til að sumir af þeim fái að fara inn ;o)
Og svo ættiru kannski bara að klára stúdentinn með áherslu á stærðfræði til að geta kommentað hjá vinum þínum ;o)
Niiii...ég útskrifaðist t.d. með 30 einingar í stærðfræði og sjáðu hvar ég er! Hefur ekki nýst mér neitt...nota aldrei stærðfræði sem ég lærði eftir 5. bekk!
Skrifa ummæli