Ég er að fá taugaáfall
TVEIR dagar í skólann núna og ég á eftir að gera ALLT.
Það sem felst í þessu ALLT er m.a.:
-þvo öll fötin mín því þau eru annað hvort skítug, krumpuð eða með fjósalykt eða beljukúk á
-redda öllum fjármálum (sem felst í því að fara í hraðbanka)
-kaupa lyf (sem veldur tvítóla fóstri)
-versla kók og nammi og eitthvað meira
-versla sólgleraugu
-versla íþróttabuxur
-versla leggings
-versla föt yfir höfuð (s.s. yfir höfuð= kjóla, síða boli osfr..)
-versla gúmmítúttur
-klára að prjóna (sem tekur mig svona sjö aldir miðað við hvað ég er búin að vera lengi að þessu og lítið farið að sjást á helvítis flíkinni)
-finna fullt af dóti og fötum
-kaupa spólur í vídjóvél
-kaupa hleðslutæki
og síðast en ekki síst: pakka, gera mig til, tékka á öllu og fokksjittfokk ég er að vinna 9-5 á morgun og hinn og til hádegis hinn og svo keyrum við út úr bænum!!
---
hversu lengi getur tími hjá tannlækni dregist? það er alltaf góð afsökun....
---
en annars ég verð að útskýra lífshættuna...
ég var sem sagt næstum dáin í dag
morðóð kýr réðst á mig, gleypti hálfa peysuna mína og gerðist svo skæð að sleikja á mér rassinn, bakið og hnakkann allveg svo ég sat eftir öll blaut á botninum með sællega kýr við hlið mér. svo baulaði hún eins og Búkolla og sprændi svo við hliðina á mér svo það skvettist upp um mig alla. um leið kom ég auga á könguló en ég hata köngulær og var næstum dáin útaf þessu öllu saman.
þetta er ekkert grín.
miðvikudagur, 4. júní 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Heppin að þetta var ekki ísbjörn, síðustu fréttir herma að hann hafi verið örsökin að jarðskjálftanum á suðurlandi.
hahahaha
já það er alveg skýring útaf fyrir sig...
Hæ hó alkar!!!
Ég áði um stund á síðunni þinni til þess að fá mér vænan skammt af hlátursgasi, nei, hláturskasti...
Tak so meget fyrir helgina og pössunina og allt heila klabbið. Varð miður mín þegar ég var að fara að sofa í gærkvöldi og uppgötvaði að ég hafði ekkert heyrt í þér allan daginn, EKKERT, ekki eitt sms einu sinni, hvers á ég að gjalda???
En já, ég á sem sagt eftir að gera ALLT líka en er alveg ringluð því ég veit að ég á eftir að gera það en veit ekki alveg hvað það er samt sem áður.
Jæja, vildi bara commenta aðeins og segja að krílið biður að heilsa og líka Gráa tussan...
E.S. Held að Babababa sé skotinn í þér ;)
Bless í bili, apaspili, þín elskandi Tullukrull :)
Úbbs gleymdi.
Vildi líka segja þetta:
Ég bý í sveit
á sauðfé á beit
og sællegar KÝR út á túni...
Hahahaha, bæbb Tulla :)
Skrifa ummæli