mánudagur, 18. febrúar 2008

Kaldhæðni örlaganna?

Okei afsakið hversu ör ég er í þessum skrifum...

vildi bara koma því á framfæri við ástkæra lesendur mína að gæta sín á því hverju þið óskið ykkur.

í gær óskaði ég mér þess að ég þyrfti ekki að mæta í skóla, vinnu og tiltekt í dag.

síðasta bloggfærsla hét munnræpa...

og ég vaknaði upp í nótt kl 3 með svakalegustu munnræpu sem ég hef fengið, gubbupest með tilheyrandi viðbjóði.

svo nú fer ég hvorki í skóla, vinnu né í tiltekt.

æli hinsvegar eins og enginn sé morgundagurinn.

skemmtileg útfærsla á óskinni minni, takk kæri andi.

1 ummæli:

jennzla sagði...

Halló leyndarmálið á bakvið Leyndarmálið...veistu ekkert?

En þetta er allt í lagi, Kisi elskar mig :o)