mánudagur, 25. ágúst 2008

Babb í bátnum

kaffihús með Rósu, skólasetning og verslunarleiðangur með Rósu yfirstaðið...



og VÁ mér líst vel á skólann, ekkert mál að fá frí í viku fyrir Costa del Sol ferðina mína svo ekkert nema hamingja á dagskránni



fer út 1. sept svo það styttist í þetta, á mánudaginn verð ég að sleikja sólina og vappa um í Afríku á miðvikudeginum...sjiiiiit ég er spennt



var ekkert að reikna með að ég gæti fengið frí svo nú þarf ég að fara að huga að því að kaupa það sem ég á eftir að kaupa og redda öllu fyrir ferðina



annars er lítið að frétta, fékk stundatöflu áðan og er í skólanum frá 9-4 alla daga.



heimsótti liðið í MH áður en ég fór á skólasetninguna í kvikó og skráði mig í öldungadeild MH þar sem ég ætla að taka 15 einingar með hinu...fjúff svolítið mikill pakki þar sem ég verð líka á fullu í tónlistarskólanum, Skugga-Sveini í LK og væntanlega líka eitthvað að LH-ast...eeeeeeen ég er eins og ég er og breytist voðalega lítið



ætla að koma mér upp að sauma buxur

2 ummæli:

jennzla sagði...

úhú ég fæ alveg fiðring í magan fyrir ykkar hond :o)

jennzla sagði...

og er strax byrjuð að gleyma ástkæra ylhýra málinu og ekki einu sinni komin til london!