Ég byrja í skólanum á morgun. Finnst ótrúlega skrýtið að vera aftur að byrja í nýjum skóla, svo stutt síðan ég byrjaði í MH einhvernveginn...
Ég er búin að henda hækjunum. Tók ákvörðun á laugardagsmorgun að ég nennti þessu ekki lengur, tróð fætinum á mér í skó og haltraði minn veg. Seinni partinn var ég farin að ganga nokkuð eðlilega svo ég ákvað að rífa af mér umbúðirnar og skella mér á hælaskó svona í tilefni kvöldsins. Það gekk mjög illa í fyrstu því ég var alltaf að misstíga mig á hælunum og það var viðbjóðslega vont þar sem bólgan er engan veginn farin og ég er enn að drepast í ökklanum. En svo var ég heví hipp og kúl og var farin að ganga eins og dama þegar leið á kvöldið. Ég var mest hissa á því hversu góð ég var þegar ég vaknaði í morgun, bólgan reyndar aðeins meiri en í gær en verkurinn bara svipaður. Og þetta tókst mér, pff að hvíla fótinn í tvær vikur er kjaftæði. Já KJAFTÆÐI. Eða kannski ekki alveg...meira bara svona óþolinmæði í mér.
Ég horfði ekki á leikinn í morgun. Ekki. Pú á ykkur sem rifuð ykkur fram úr eldsnemma til þess að horfa á strákana ykkar tapa. Ég svaf og ég svaf vel. Allir ótrúlega hamingjusamir með árangurinn. Ég er ekki sátt. Þeir töpuðu leiknum, svo einfalt er það. Svo er ég líka pínu pirruð því þá verður engin mega "þjóðhátíð" heldur bara meira svona allir að reyna að sætta sig við silfrið og vera ótrúlega kvetjandi.
Æ vá nú hljóma ég eins og ég sé ótrúlega neikvæð...bara plat! Ég er alveg búin að flagga og fagna stanslaust síðan ég vaknaði klukkan 05.10 í morgun til að hita mig upp fyrir áhorfið. Keypti mér treyju og setti í mig tígó með fánaborðum og borðaði svo íslenskan morgunmat og talaði íslensku því ég er svo stolt af sjálfri mér. Og strákunum mínum.
oj.
Ég er viðbjóðslega þreytt og ætla að leggja mig og safna kröftum fyrir morgundaginn. Vúbbídeió
sunnudagur, 24. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég svaf líka
var búin að segja öllum að þeir myndu tapa
það bara er þannig
og allir létu eins og ég væri að guðlasta
við eigum að vera ótrúlega ánægð með þá, þeir unnu fkn silfrið á ólympíuleikunum!
það er bara drullufkngott!
Haha (er ég eitthvað að endurtaka mig) hvað varstu að spá að troða þér í hælaskó!? .. kannski að drekka líka? Þá væri allavega komin ástæða fyrir því að þér hafi tekist að byrja að ganga eins og dama þarna undir lokin:P
Skrifa ummæli