föstudagur, 18. júlí 2008

Lífið er lykkjufall

segir Megas og ég er sammála. Við því er ekkert að gera, nema bara njóta þess, líða eins og portkonu og stækka gatið...eða þá bara naglalakka fyrir og reyna að loka því.

Ég vaknaði í morgun alveg eiturhress og skellti mér í Bónus. Var með nettan hnút í maganum því ég þurfti að versla fyrir alveg fimm manna "fjölskyldu" og það er ég ekki vön að gera. En þetta heppnaðist ágætlega...svona fyrir utan óþolandi krakkann sem fannst óskaplega gaman að hlaupa framhjá körfunni minni, þegar ég sá ekki til, og henda drasli ofan í hana. Ég ætlaði að fara að kýla hann kaldann þegar móðirin birtist í öllu sínu veldi, bullandi sílíkon og aflitun á þeim bænum. Ég hörfaði skelkuð og rotaði mig á bananastandi. Jebb. Bananastandi.

Þegar ég kom að kassanum var ég með u.þ.b. tuttugu Haribo hlauppoka í körfunni minni sem krakkanum hafði tekist að troða þangað. Úffffffff...og við erum alveg að tala um að gæinn sem ég "hljóp" á og hálfrotaði mig svo á bananastandinum, stóð fyrir aftan mig í röðinni og þegar ég fór að týna upp alla hlauppokana og biðja afgreiðsludömuna um að taka við þeim, þá fékk hann endanlega staðfestingu á geðveiki minni.

Bónus-ekkert bruðl.


Ég skil ekki af hverju ég er ekki að fá borgað fyrir svona spons. Og já..sem minnir mig á það, mig vantar peninga, fullt af peningum. Ég er búin að íhuga ýmsar leiðir, tombólur, rán, betl og meira að segja búin að reyna að skipuleggja heljarinnar rán. Það rán átti nú reyndar ekkert að vera mikið heljarinnar heldur meira svona "allt í plati" og hirða svo peningana. Múhaha. En hey, ég er of góð fyrir svoleiðis svo þetta gekk ekki upp. Og auk þess er ég áttavilltari en Einar (áttavillti...ef þið fattið ekki, þá það) og gat því engan veginn búið til kort.

Svo...mig vantar vinnu. Ég er í vinnu og búin að ráða mig í vinnu til áramóta en mig langar í meiri meiri peninga og því betur launaða vinnu. Getur einhver aðstoðað mig? Get bara unnið um helgar og helst bara aðra hverja...en get þá líka alveg unnið bara 24 tíma þess vegna. Hvað sem er, nema það innihaldi fisk, fugla eða yfir höfuð dýr...

ÓKÍDÓK ÉG ER FARIN

2 ummæli:

Unknown sagði...

Eg segi bar...þeir borga fínt

Og miðasalan í Íslensku Óperunni....mæli eiginlega frekar með henni! Veit það mun vanta þar í vetur því við erum eiginlega allar semvorum að vinna þar að fara í skóla í útlöndum ;o)

Og hún borgar tæknilega séð betur

Svo er líka hægt að gera eins og ég og vera í óperunni á daginn og kveldin og svo á Næsta á nóttunni...stutt að hlaupa á milli ;o)

Er líka farið að langa til að tala við þig, þér hafið vakið upp forvitni mína ;o)

Vona að það hafi gengið vel á Selfossi!

Næst þegar þú lendir í svona krakka, náðu þá bara í sjampóbrúsa og skjóttu sjampói á hann þegar hann hleypur framhjá!

:o)

Unknown sagði...

hei já og þetta er jenný

er víst logguð inn sem sýnir

sem er samt skrítið

anywho!